|
Jólatré:
- Býflugan og blómið
selur 1. flokks lifandi jólatré (Nordmandsþin) og greni (Tuju, Nobelix
og Nordmandsþin) sem er innfluttur beint frá Danmörku.
- Umhirða Jólatrjáa (Normandsþins)
- Ef Jólatréið er ekki sett upp strax eftir kaup er best að geyma það á
svölum stað þar sem góður raki er t.d. úti þar sem það fær vætu af
rigningu eða snjó.
- Fyrir uppsetningu innandyra er gott að spúla tréið
með vatni t.d. í baðkari eða sturtu. Gott er að saga þunna
sneið neðan af stofni jólatrésins áður en tréið er sett í
jólatrésfótinn. Nauðsynlegt er að passa að alltaf sé nægt vatn í
jólatrésfætinum.
|
|
|
Pottaplöntur:
- Rannsóknir benda ótvírætt til þess að heilsusamlegt sé að hafa lifandi plöntur í híbýlum
manna. Gróflega má skipta inniplöntum í tvo flokka; grænar plöntur sem oftast eru fjölærarar og
hins vegar blómstrandi plöntur sem ræktaðar eru vegna blómprýði og eru oft einærar.
-
Við kaup á blómstrandi plöntum ætti að líta til þess að þær endast tímabundið, oftast í
nokkrar vikur og þyrfti að skipta þeim út þegar ekki er lengur af þeim prýði. Þannig
má líta á blómstrandi plöntur á nokkuð svipaðan hátt og afskorin blóm, nema að þær endast
mun lengur.
-
Það skemmtilega við blómstrandi plöntur er að margar þeirra eru árstíðabundnar og geta því
gefið heimilinu skemmtilegan blæ hverrar árstíðar. Erfitt er að alhæfa um meðferð
pottaplantna, en almennt má segja að blómstrandi plöntur þurfi góða vökvun og birtu, en
grænar plöntur minni vökvun og þá sér í lagi yfir vetrartímann.
-
Varðandi ummhirðu einstakra tegunda er bent á að ýmsar bækur um blóm og meðferð þeirra
fást í bókaverslunum, einnig má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar á slóðinni hér að
neðan.
Áhugaverð síða um pottaplöntur:
www.floradania.dk
|
|
Fræ:
Í verslun okkar í Glerárgötu er mikið úrval af eftirfarandi frætegundum:
Áhugaverð síða tengd Fræum:
http://www.lystigardur.akureyri.is
Sáningaraðferð:
-
Auka þarf birtuna en forðast beina sól. Á þessu stígi er plastfilman er fjarðlægð og vökvað er oft en lítið í einu.Áður
en sumarblómin eru sett út að vori er nauðsynlegt að herða þær, svo þær fái
ekki sjokk við að fara beint út, innan úr hlýjunni.Þetta er
gert með því að flytja plönturnar út á
daginn og inn á nóttinni. Þetta þarf að gera í ca. vikutíma áður en plöntunum er endanlega komið fyrir úti í garði, allan sólarhringinn þegar veður og tími leyfa t.d. upp úr miðjum maí.
|
|
|
Laukar
Fróðleikur:
- Mjög árangursríkt er að nota laukinn af Keisarakrónu / Fritillariu sem músafælu. Þú setur einfaldlega allan laukinn eða hluta af honum þar sem músagangur er og þú ert laus við mýsnar.
Áhugaverðar síður um lauka:
http://www.keukenhof.nl
http://www.bulbsonline.org
http://www.lystigardur.akureyri.is
|
|
|
Sumarblóm
- Sumarblóm eru einærar plöntur sem eru í blóma meira eða minna allt sumarið. Þau eru til í öllum mögulegum litum, stærðum og gerðum og eru sannkallaðir gleðigjafar.
- Sumarblóm eru tilvalin í ker og potta og til upplífgunar í beð með fjölærum plöntum og runnum.
- Við kappkostum að selja eingöngu gæða plöntur í garðplöntusölunni okkar.
Verið er að vinna í sumablómalista og frekari fróðleik.
Áhugaverð síða tengd sumarblómum:
http://www.lystigardur.akureyri.is
|
|
|