1.
Næst efst til hægri á síðunni er kassi
þar sem stendur Notendur.
2.
Ef þú hefur skráð þig inn áður,
þá setur þú netfangið þitt í
reitinn Notendanafn
og lykilorðið í reitinn Lykilorð
og smellir á <Innskráning>.
3.
Ef þú hefur aldrei skráð þig inn áður,
smellir þú á <Búa
til aðgang>
neðst í kassanum.
4. Þar skráir þú
upplýsingar um þig / fyrirtækið. Athugaðu
að reiti með * verður að fylla út. Þegar
þú hefur fyllt út viðeigandi upplýsingar
smellir þú á <Senda
skráningu>. Nauðsynlegt er að vera innskráður áður en byrjað er að versla.
5.
Þá ertu búinn að skrá þig sem
viðskiptavin Býflugunnar og blómsins og færð sjálkrafa
tölvupóst því til staðfestingar.
6.
Við mælum með að þú breytir
lykilorðinu í eitthvað sem þú átt
auðvelt með að muna. Það gerir þú
með því að skrá þig inn með því
að setja netfangið þitt í reitinn Notendanafn
og lykilorðið í reitinn Lykilorð
og smella á <Innskráning>.
Í kassanum Notendur
smellir þú
á <Umsjón
skráningar>
og síðan á <Upplýsingar
um reikning>. Í
reitinn Lykilorð
skrifar þú
nýtt lykilorð og staðfestir það aftur í
reitnum Staðfesta
lykilorð. Smelltu
nú á myndina af diskettunni efst til hægri á
síðunni til að vista upplýsingarnar.
7.
Nú getur þú skoðað vörur í
netverslun okkar eftir flokkum með því að smella
á vöruflokkana hér til vinstri. Þær
vörur sem þú hefur áhuga á að
versla getur þú skoðað nánar og sett í
körfu. Allar vörur sem þú velur að <KAUPA>
bætast í körfuna þína. Innihald
körfunnar og heildarverð má sjá hægra
megin á síðunni í kassanum Karfan
þín.
8.
Nákvæmar upplýsingar um vörurnar sem settar
hafa verið í körfuna ásamt verði má
sjá með því að smella á <Sýna
körfu>. Til
þess að fjarlægja vöru úr körfunni
smellir þú á myndina af ruslatunnunni aftast í
listanum. Til að panta fleiri stykki af hverri vöru seturðu
viðeigandi fjölda í reitinn Fjöldi
og smellir á myndina næst aftast í listanum.
9.
Til þess að kaupa og ganga frá pöntun á
þeim vörum sem í körfunni eru, smellir þú
á <Ganga
frá>.
10.
Þá velur þú heimilisfang og smellir á
<Næst
>>>.
11.
Nú velur þú afhendingarmátann og smellir
á<Næst
>>>.
12.
Næst velur þú greiðslumátann og
smellir á<Næst
>>>.
13.
Í lokaskrefi pöntunarinnar færðu sundurliðaðan
reikning yfir keyptar vörur. Hér gefst þér
kostur á að breyta öllum þáttum
pöntunarinnar svo þú skalt lesa vel yfir allar
upplýsingarnar. Til að staðfesta pöntun smellir
þú á <Staðfesta
pöntun>. Ef
breita þarf pöntun smellir þú á
viðeigandi körfu efst á síðunni.
14.
Þú færð staðfestingu um að pöntunin
hafi verið send og skömmu síðar færð þú
tölvupóst til staðfestingar um að pöntun
hafi komist til skila.
Ef þú óskar eftir
frekari upplýsingum hafðu þá samband eða hringdu í síma 461 5444 og við reynum að
svara öllum spurningum þínum.
|